Vesturmiðstöð leitar að hressu og jákvæðu starfsfólki í sumarafleysingu í búsetukjarna fyrir konur með miklar og flóknar þjónustuþarfir.
Um er að ræða morgun-, kvöld-, helgar- og næturvaktir.
Markmið með þjónustunni er að mæta þörfum íbúa á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt. Íbúum er veitt ráðgjöf og sértækur stuðningur í búsetunni. Þjónustan er veitt með það að markmiði að efla vald íbúa yfir aðstæðum sínum og lífi, styrkja sjálfsmynd, sjálfstraust, sjálfsvirðingu, félagslega stöðu og lífsgæði. Þjónustan tekur mið af skaðaminnkandi nálgun og batahugmyndafræði.
Mikilvægt er að starfsmaður treysti sér í að sinna verkefnum við krefjandi aðstæður.