Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum einstaklingi í starf ástandsgreiningartæknir. Teymið sinnir ástandsgreiningu á vélbúnaði með það að markmiði að greina bilanir áður en þær valda rekstrartruflunum. Helstu mæliaðferðir eru titringsmælingar, hátíðnihljóðmælingar, straumrásargreining á rafmótorum (MCA), hitamyndatökur og olíugreiningar.