Alcoa Fjarðaál býður iðnaðarmönnum (rafvirkjum og vélvirkjum) fjölbreytt starfstækifæri í dagvinnu. Fyrirtækið getur einnig boðið nokkrum iðnnemum námssamning og starfsþjálfun.
Í hátæknivæddu álveri Alcoa Fjarðaáls vinnur mjög fjölhæfur og öflugur hópur iðnaðarmanna að því að tryggja áreiðanleika búnaðar með bestu viðhaldskerfum sem völ er á. Sérhæft teymi greinir ástand búnaðar, fjögur svæðisbundin teymi sinna skipulögðu viðhaldi í dagvinnu og miðlæg viðhaldsvakt bregst við bilunum allan sólarhringinn. Iðnaðarmenn hjá Fjarðaáli vinna jafnframt mjög náið með framleiðsluteymum, tækniteymum og sérfræðingum í áreiðanleika og viðhaldi.