Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingum til þess að ganga til liðs við okkur í sumar. Í boði eru fjölbreytt og spennandi störf á góðum vinnustað.
Í lok sumars er möguleiki á áframhaldandi starfi, eða hlutastarfi með námi. Unnið er á vöktum í vaktakerfi sem býður upp á hæfilega langar vaktir og gott frí á milli.
Komdu og vertu hluti af okkar frábæra teymi í sumar!
Af hverju Alcoa Fjarðaál?
Tækifæri til að vinna í einu tæknilega fullkomnasta álveri í heiminum
Góð laun og fríðindi
Vaktakerfi sem veitir frelsi til að sinna áhugamálum
(Unnið í 5 daga og frí í 5 daga í skautsmiðju og steypuskála)
(Unnið í 4 daga og frí í 6 daga í kerskála)
Mikil tækifæri til að þróa hæfileika þína og vaxa í starfi
Vingjarnlegt og stuðningsríkt vinnuumhverfi
Tækifæri til að halda áfram að vinna eftir sumarið og yfir hátíðarnar
Fríar rútuferðir til og frá vinnu
Frítt mötuneyti