Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsfólk í afleysingar í sértækri stuðningsþjónustu.
Um tímabundna ráðningu er að ræða frá vori og út nóvember 2026. Æskilegt að starfsmaður geti byrjað sem fyrst.
Starfsmaður aðstoðar þjónustuþega með miklar og flókar þjónustuþarfir og vinnur eftir stefnu Hafnarfjarðar í málefnum heimilislausra og veitir einstaklingsmiðaða þjónustu sem er skipulögð með tilliti til þarfa einstaklingsins. Tekið er mið af skaðaminnkandi hugmyndafræði og batamiðaðri nálgun. Vinnutími er frá hádegi og fram á kvöld alla daga vikunnar, unnið í vaktavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Einstaklingurinn þarf að hafa bílpróf og bíl til umráða.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf.
Nánari upplýsingar veitir Áslaug Erla Hansdóttir teymisstjóri sértækrar heimaþjónustu aslaugh@hafnarfjordur.is eða í síma 585 5500.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.