Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi í sumarafleysingu á Laugavegi 105

Reykjavíkurborg - Velferðarsvið · Laugavegur 105, 105 Reykjavík
INTERIM alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-15

Íbúðakjarninn að Laugavegi 105 óskar eftir að ráða öfluga stuðningsfulltrúa í sumarafleysingu. Fjölbreytt starf með skemmtilegu fólki.

Markmið starfseminnar er að veita einstaklingum með fjölþættan vanda stuðning við sjálfstæða búsetu. Starfsemin byggir á stefnu Reykjavíkurborgar um einstaklingsmiðaða þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum. Unnið er eftir aðferðum Þjónandi leiðsagnar, hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og valdeflingu. Þjónustan miðast við að auka sjálfstæði, efla færni og lífsgæði notenda.

Leitast er eftir að skapa jákvætt og heilsueflandi starfsmannaumhverfi sem skilar sér í þjónustu við íbúa. Tekið er vel á móti nýju starfsfólki.

Á Laugavegi 105 er veitt sólarhringsþjónusta og um er að ræða vaktavinnu, dag-, kvöld- nætur og helgarvaktir. Viðkomandi þarf að geta unnið allar tegundir af vöktum. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir nánara samkomulagi.

Sækja um →

Launamat

812.000
kr / mánuð
Heimild: VR Launakönnun
Nánar: VR: Fulltrúi
Ársstofa: 9.744.000 kr
Traust: 70%