Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er með lausa stöðu iðjuþjálfa. Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Starfið felst í almennum störfum iðjuþjálfa fyrir einstaklinga og hópa ásamt þverfaglegu samstarfi innan HSS. Hlutverk iðjuþjálfa er að stuðla að og viðhalda sjálfstæði skjólstæðinga og efla þá til sjálfshjálpar. Um er að ræða 100% framtíðarstarf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.