Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga/nema í sumarafleysingar í heimahjúkrun. Um er að ræða vaktavinnu. Heimahjúkrun sér um víðtæka hjúkrun í heimahúsum fyrir íbúa á Suðurnesjum. Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.