Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga/hjúkrunarfræðinema í afleysingarstörf á hjúkrunardeild. Um er að ræða vaktavinnu með möguleika á framlengingu. Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.