Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraliða og sjúkraliðanema í sumarafleysingar á hjúkrunardeild. Um er að ræða vaktavinnu með möguleika á framlengingu. Hægt er að hefja störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.